Iðjurnar
Könnun
Hvað eigum við að gera á laugardaginn???
Hár og heilsa, keila, út að borða, Vörðutún
0 atkvæði

Hár og heilsa, út að borða, Vörðutún
3 atkvæði

Keila, sund, út að borða, Vörðutún
0 atkvæði

Sund, út að borða, Vörðutún
1 atkvæði

Keila, sund, elda og borða heima
0 atkvæði

Bara elda og borða í Vörðutúninu
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 4
16.02.2010 11:29:20 / Iðja

Hittingur!!!!!!

Sælar kæru dömur og afsakið töfina!!
þá er komið að því að hittingurinn verði hjá mér og ég var að spá í komandi helgi! Hvernig líst ykkur á og hvort kvöldið hentar ykkur????
Var að hugsa um dinner um hálf átta annaðhvort föstudag eða laugardag!!
Kveðja Linda

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.12.2009 16:59:25 / Iðja

Jólakveðja :-)

Sælar kæru ,,bekkjarsystur"

Þar sem jólapósturinn minn misfórst þetta árið langar mig að nota síðuna okkar til að senda ykkur öllum og fjölskyldum ykkar bestu kveðjur og þakkir fyrir samverustundir liðinna ára. Vonandi verður árið 2010 ykkur gott og hamingjuríkt. Kærar þakkir fyrir fallegu kortin sem þið senduð mér:-) Hvernig var það voruð þið ekki með sömu póstþjónustu og ég  ;-) ??

Jóla- og áramótakveðjur - Pálína


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 16:19:52 / Iðja

Bústaðarplan frh :)

Þar sem hin umræðan er orðin svo óendanlega löng, ákvað ég bara að búa til nýja :) En nú þýðir ekkert að slá slöku við því það er alveg að koma að brottför vííííí, tíminn líður ekkert smá hratt. Ég myndi vilja fara að gera upp við bústaðareigandann til að hún haldi ekki að við séum hættar við. Og líka út af því að mig dreymdi í fyrrinótt að við værum að leggja af stað í bústaðinn og þá uppgötvaðist að það ætti eftir að greiða hann og hófst þá mikið hafarí við að leita að reikningsnr. og e-u fleiru og allt varð í hers höndum hahaha. Segið svo að ég taki þetta ekki alvarlega ;)
En allaveganna eins og staðan er í dag þá stefna Anna Dís, Rakel og Pálína á að vera eina nótt- Helena er óviss en rest stefnir á tvær nætur - eða hvað?

Ef Helena verður 1 nótt þá greiða:
Þær sem verða 1 nótt- 1444 kr
Þær sem verða 2 nætur - 4044 kr

Ef Helena verður 2 nætur þá greiða:
Þær sem verða 1 nótt- 1444 kr
Þær sem verða 2 nætur - 3610

Hvað segið þið um þetta?  Svo er spurning hvort þið viljið plana e-ð meira sameiginlegt.. eins og t.d. kvöldmatinn á lau.kv. eða eigum við bara að fara aftur út að borða á Pottinn og pönnuna (var það ekki annars sá staður sem við fórum á)? Eða á bara hver að sjá alveg um sig??
Tilhlökkunarkveðjur, Nanna

» 30 hafa sagt sína skoðun

04.09.2009 09:48:28 / Iðja

Bústaðarferð

Sælar allar,
í síðasta saumó, þar sem mættar voru undirrituð, Erla, Nanna og Pálína kom upp sú umræða hvort ætti að láta verða af títt umræddri bústaðarferð... Þannig að vangaveltur eru um staðsetningu og annað í þeim dúr. Erla ætlar að kanna hjá vinafólki sínu um bústað í Skagafirði og svo er það hvort einhver nefnd var kosin síðast he he...
Dagsetningar sem koma til greina væru síðustu tvær helgarnar í september. Hvernig hugur er í ykkur hinum...???
Kveðja Linda

» 31 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 18:54:13 / Iðja

Saumó

Sælar dömur og gleðilegt sumar :) Það verður saumó hjá mér mánudagskvöldið 4 maí. Fínt ef þið komið um 20:30 þá verð ég vonandi búin að svæfa dúllurnar. Hlakka til að sjá ykkur. Kveðja Anna Soffía

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 15:44:10 / Iðja

Jæja, hér er plan klúbbsins og næsti hittingur :-)

Sælar stúlkur.
Það var einróma samþykkt á hittingi á Bláu könnunni síðastliðið fimmtudagskvöld að við myndum setja fasta áætlun um að hittast, í fyrstu viku hvers mánaðar.
Það þýðir það að næsti hittingur er í fyrstu viku marsmánaðar og mun Pálína sjá um þann hitting og boða til fundar.
Röðin mun í framtíðinni verða í stafrófsröð en vegna þess að þetta riðlaðist í sumar þá er röðin núna eftirfarandi :

Pálína
Kristín
Anna Soffía
Erla
Helena(r)
Linda
Nanna
Kristín
Pálína
.... og svo framvegis eftir stafrófsöð
Anna Dís og Rakel ávallt velkomnar og við reynum að passa upp á árlegan hitting með þeim

Það eru bara tvær reglur:
*Halda hittinginn í fyrstu viku mánaðar
* Passa upp á að það verði boðað til hittings í fyrstu viku mánaðar! Ef á mánudegi þeirrar viku er ljóst að viðkomandi getur ekki haldið klúbb í vikunni þarf hún að hafa samband við þá sem næst er í stafrófinu og koma klúbbnum yfir til hennar ef hún getur séð um hittinginn. Ef þetta gerist þá færist sú sem átti klúbbvikuna bara aftur um einn mánuð og tekur þá næsta hitting á eftir. (semsé fer ekki alveg aftur fyrir röðina).

Endilega munið líka að við getum alveg boðað til hittings annarsstaðar ef illa stendur á og svo er líka allt í lagi að vera ekki með fermingarveislu :-) Aðalmálið er að hittast og hittast ekki það sjaldan að við missum tengslin við hvor aðra!!

Ég býð ykkur hér með heim í Snægilið, miðvikudaginn 4. mars næstkomandi, kl. 20.

Vonandi líst öllum á planið.
Kveðja Pálína


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 11:05:41 / Iðja

Helena

JÆÆÆÆÆJJJJJA!!!!!!!!!!

:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 08:33:40 / Iðja

Saumaklúbbur

Jæja dömur mínar. Ég hafði samband við Erlu og hún óskar eftir að sitja hjá í þetta skipið þannig að röðin er komin að mér.
Málið er þannig að heimili mitt er rétt að slefa í það að vera íbúðarhæft ---hefur verið það unanfarna mánuði og verður það næstu mánuði þannig að ég hef ekki tök á að bjóða ykkur heim til mín í þetta skiptið.
Hvað segið þið um að við hittumst á Bláu könnunni ???:lol:
Ég bæti ykkur það upp næst þegar röðin kemur að mér þar sem þá verður tvöfalt magn í boði og HVÍLÍKAR KRÆSINGAR Í BOÐI :$

HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ UM AÐ VIÐ HITTUMST Á ÞEIRRI BLÁU FIMMTUDAGINN 19.FEB KLUKKAN 20 ??

Hvað segið þið um þetta dömur mínar??


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 13:46:24 / Iðja

Gleðilegt nýtt ár kæru ,,bekkjarsystur" :-)

Sælar, langaði bara að óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka ykkur fyrir skemmtilegar samverustundir á liðnu ári. Vonandi náum við að hittast sem oftast á þessu nýja ári. Sjáumst í næsta klúbbi. Kveðja Pálína

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 12:44:42 / Iðja

ALLT AÐ GERAST

Jæja dömur mínar

Trúið þið því að við séum loksins að takast að hittast !!! Ég trúi því varla hehehe. Ég heyrði í Önnu Dís í gær og þær voru að spá í fluginu, ætla að koma annað hvort á fös. kvöld eða lau. morgun.  Er þá ekki upplagt fyrir okkur að hittast á lau. kvöldið. Hvað segið þið um að fara e-ð létt út að borða og svo gætum við þess vegna hist hér á eftir og sötrað nokkra drykki að eigin vali??? Gætum líka skellt okkur í keilu áður en við förum að borða- eða farið e-s staðar í heitan pott með/án nudds... Hvað líst ykkur á mínar kæru samferðakonur, endilega látið ljós ykkar skína sem aldrei fyrr!

Kveðja, Nanna


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 14:04:11 / Iðja

Gamlir tímar :-)....maður brosir út í annað!

Sælar stúlkur. Maður er nú farin að sakna ykkar svo mikið að ég stend mig að því að blaða í gömlu efni frá síðasta árinu og fann þar þessar minnisnótur sem við Erla höfðum sett til hliðar sem dæmi um hve sýrður maður er orðinn í lokaverkefnisgerð á 4 ári: Gaman að þessu núna. Maður brosir með sjálfum sér og það liggur við að ég væri til í eitt svona samvinnuverkefni með ykkur... segjum vikuferð í bústað þar sem unnið yrði eitthver uppbyggilegt og umfram allt nýtilegt verkefni sem við færum svo með á ráðstefnu í lok vikunnar :-) Segi eins og í spaugstofunni..... lítið á þetta:

Frasar úr lokaverkefni Erlu og Pálínu (óleiðrétt):


Varðandi verkgetu/hreyfingu höfðu mörg barnanna ekki stjórn á hreyfingum en einnig mátti greina takmörkun á hreyfifærni þar sem sum áttu erfitt með að áætla hæfilegan kraft við að skera ,,Bitarnir voru stórir og í nokkrum tilfellum skutust þeir út fyrir diskinn þar sem hreyfifærni þeirra var takmörkuð”............þessi bataði til muna eftir langar vangaveltur:..... Útkoman varð því: ... gjarnan of stórir bitar sem stundum lentu út af diskinum”.... en þessi setning var á endanum cuttuð út úr verkefninu! />

og enn að bitunum,, ....Algengast var að börnin héldu við kjötið með fingrunum, reyndu að þrýsta hnífnum niður í gegnum matinn og ná bitunum þannig í sundur (já finally náðum við einvherju viti í þetta... eða??) />

>

Dómgreind var þroskaþáttur sem víða mátti greina merki um takmörkun (eins gott að dómgreind er ekki lengur þroskaþáttur!! :-)

Slíkt er .... já og slíkt er grundvöllur og ennþá... áfrma slíkt er forsenda.. slík börn !! Hvort er betra brýnt er eða slíkt er ?? />

>

Að nota erfiðleikaröð atriða á AMPS til að bera saman við niðurstöður forprófunar á ,,ákveðnu" matstæki er hægt... ,, Þökk sé Rasch greiningunni”... humm já Rass greininginn AMEN

,,Í erlendum heimildum eru til upplýsingar um matstæki sem ætluð eru til þroskamats á börnum”  ... Hjúkk, eins gott því varla er það til í íslenskum heimildum... eða hvað?? />

>

Börnin notuðu klaufalegar hreyfingar við að beita hnífsblaðinu />

>

Atriði inni á PEDI: ,,Snýta sér að eigin frumkvæði”... þetta fannst Erlu drepfyndið (síðasta kvöldið enda orðin þokkalega súr!


Hér er einnig um býsna flókin atriði að ræða... ok og ...... />

....Hér er einnig um flókin atriði að ræða svo sem tannburstun og að þvo sér í framan  - (aha það hlaut að vera munur´a býsna flókin og flókin) />

>

COmment: ,,ég er ekki alveg klár á þessu andlagi og forlagi þarna.. og háttum og slíku”   Fröken pálína ekki alveg klár á ,,frumlaginu og andlaginu” :-/ />

>

að lesa yfir og gera vitleysu: ,, undirliggjandi skjólstæðingar eru metnir”.. Úps... þetta náðist sem betur fer að leiðrétta...!!!


Ekki er nú öll vitleysan eins en nóg komið af henni í bili :-) Jæja, stulkur... verðum að fara að hittast... ERLA?? eða á að varpa boltanum á Helenu ..?? Svo megið þið endilega lauma einhverju til að hrist upp í hverstagslífinu :-) Kv. Pálína
/>


/>



» 4 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 15:18:43 / Iðja

Hva´r að ske !!!!!!!

Er allur vindur úr okkur stelpur? Mig er farið að sár langa til þess að hitta ykkur aftur, er engin önnur í sömu sporum :$. Er ekki kominn saumó fílingur í einhverja? Eða á að gera eitthvað í Sumarbústaðamálum, myndi nú alveg þiggja smá húsmæðraorlof.
Vonandi kíkja einhverjar ykkar ennþá hérna inná svo ég tali nú ekki bara við sjálfa mig..... Kveðja Linda

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 22:45:16 / Iðja

Saumó

;) Jæja hvað segja skvísurnar? Er ekki komin tími á saumó fljótlega? Ágúst minn fór út á sjó viku fyrr en hann átti að fara og ég er að dreeeepast úr leiðindum skææææl :(:(:( Hvað er að frétta af ykkur? Ég gerði tilraun til þess að heimsækja þig í dag Pálína....Prófa aftur seinna...Sakna ykkar dúllurnar mínar

kveðja Anna Soffía

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 23:36:15 / Iðja

Fullt af afmælum!!!

Sælar skvísur og til hamingju með afmælin Erla, Pálína, Helena og Emilía Eir..Er búin að halda 2 veislur með stuttu millibili...Sóley átti afmæli 21 maí og bauð vinum sínum til veislu og litla prinsessan hún Sunneva átti afmæli í gær. Já brjálað að gera:d:d Vonandi áttuð þið góða afmælisdaga, svo á Linda afmæli 5 júní. Í sambandi við saumó...Ég væri nú alveg til í einn saumó! Hvað segið þið hinar?? Við höfum nóg til að halda upp á!

Bæjjj í bili Anna Soffía

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 09:36:43 / Iðja

Hittingur !!

Sælar mínar kæru. Ákvað að búa til nýja færslu hérna út af hittingi svo fólk fatti nú að við erum að tala um þetta. Ég er laus 6 eða 7 júní. Er þá með börnin og myndi af öllum líkindum skreppa bara í sveitina og fá mömmu til að passa. Anna S er líka laus en Nanna verður austur á landi.Mér finnst líka koma til greina ef einhver vill halda klúbb í miðri viku á þessu tímabili (sem á eftir að halda klúbb) geri það þó Erla haldi sig við 6 jún. Þá komast kannski einhverjar þá og svo aðrar 6 júní þó ekki komist allir í báða klúbba. Þurfum ekkert að hafa fermingarveislu í hvert sinn ;-) Ef þetta er bara létt og laggott þá þarf svo lítinn undirbúning. Hvað finnst ykkur? Allavega - gaman væri að fara að sjá ykkur mínar kæru. Kveðja Pálína


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10